Back to All Events

Stunt driving seminar


  • Akstursíþróttasvæði AÍH, Hafnarfjörður Akstursíþróttasvæði Hafnarfjörður, Hafnarfjarðarkaupstaður, 221 Iceland (map)

Icelandic Stunts í samstarfi við Action Vehicles verða með námskeið í nákvæmnis akstri fyrir kvikmyndir.

Lærðu nákvæmnis akstur fyrir kvikmyndir undir handleiðslu Action Vehicles.

Action Vehicles hafa sinnt áhættuakstri á Íslandi undanfarin ár. Bæði í íslenskum og erlendum kvikmyndaverkefnum. Þar ber að nefna.

  • Heart of Stone

  • Fortitude 

  • Ófærð

  • Berdreymi

  • Svörtu Sandar

Námskeiðið hefst á fræðslu um nákvæmnis og áhættuakstur. Þar verður farið yfir öryggisreglur sem þarf að fylgja. Í kjölfarið verður í verklegar æfingar, má þar nefna.

  • Handbremsu slide, bæði 90° og 180°

  • Bakkfærni, hraði og nákvæmni, slalom

  • Nákvæmnisakstur, keilubraut

  • 90° slide milli bíla á ferð

  • Reverse 180

  • Slide to stop að myndavél

  • High speed fishtailing (bíl sveiflað að aftan á ferð)

  • Elta “myndavélabíl” (æfa nákvæmni að elta og fylgja bíl með cameru arm)

Námskeiðið fer fram helgina 16. og 17. sept, milli kl 09:00 og 17:00 báða dagana. Í hádeginu er 45 mín matarhlé. Námskeiðið fer fram á keppnisbraut AÍH á Kaphelluhrauni - 220  Hafnarfjörður.

Námskeiðið er hannað fyrir góða ökumenn sem vilja taka aksturshæfni sína uppá hærra plan í öruggu umhverfi.

Athugið að það er takmarkarð pláss, aðeins 10 sæti í boði. Tryggðu þér sæti með því að ganga frá greiðslu og senda kvittun á jonvidar@stunt.is

Verð 170.000kr (Bílarnir sem notaðir eru á námskeiðinu eru innifaldir í verði)

Kt: 691122-2470

Rn: 0133-26-007771

Earlier Event: August 19
Stunt 101 seminar
Later Event: April 13
Fighting extras